Slátturóbotar til leigu
Þú sleppur við að standa yfir sláttuvélinni. Við finnum vél sem hentar garðinum þínum, setjum hana upp og hún sér svo um reglulegan slátt allt tímabilið.

Óaðfinnanlegur garður
Viltu hafa vel sleginn garð en nennir ekki að standa yfir sláttuvélinni sjálf/ur? Við leigjum út slátturóbota sem slær garðinn daglega á meðan þú sinnir öðru, eða slappar einfaldlega af.
Eftirlit
Við fylgjumst með vélinni allan leigutímann svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur af neinu.
Niðursetning
Við setjum vélina upp og stillum hana fyrir garðinn þinn þegar leigan hefst.
Geymsla yfir veturinn
Þegar sláttutímabilinu lýkur tökum við vélina í geymslu fram á næsta vor.
Þrif, hnífaskipti og önnur umhirða
Við sjáum um reglulegt viðhald á meðan vélin er hjá þér, meðal annars þrif og hnífaskipti.

Sýnilegur munur á garðinum
Regluleg, lítill sláttur með slátturóbot skilar öðruvísi útkomu en hefðbundinn sláttur. Þessi mynd er úr garði sem hefur verið sleginn reglulega með róbot yfir sumarið.
Mosi hverfur
Regluleg og létt sláttur veikir mosann og gefur grasinu meira svigrúm til að þykkna.
Garðurinn verður jafnari
Tíður sláttur jafnar út vöxtinn og skilar sléttari, þéttari grasflöt.
Grasið nýtist sem áburður
Fínt afskorið gras fellur ofan í svörðinn og skilar næringu til baka. Garðurinn verður grænni og fallegri.
Algengar spurningar um slátturóbota
Hvernig virkar leiga á slátturóbot?
Þú sendir okkur fyrirspurn með upplýsingum um garðinn þinn. Við finnum róbot sem hentar, setjum hann upp hjá þér og hann sér svo um daglegan slátt allt sumarið.
Hentar slátturóbot fyrir minn garð?
Flestir garðar henta vel fyrir slátturóbot, en lögun, halli og umgirðing skipta máli. Við förum yfir aðstæður hjá þér og ráðleggjum hvað hentar best.
Hversu stóran garð getur róbotinn slegið?
Það fer eftir tegund róbots. Við bjóðum upp á mismunandi gerðir af róbotum, miðað við halla og fermetrafjölda garðsins. Sendu okkur upplýsingar um þinn garð og við ráðleggjum réttu vélina fyrir hann.
Hvað þarf að undirbúa áður en róbotinn er settur upp?
Í flestum tilfellum þarf lítið annað en aðgang að garðinum og rafmagn fyrir hleðslustöðina. Við förum yfir nákvæm atriði með þér áður en uppsetning fer fram.
Þarf að grafa vír í garðinn fyrir róbotinn?
Nei. Róbotarnir sem við bjóðum upp á staðsetja sig með gervihnattasambandi í stað hefðbundins jaðarvírs, svo ekki þarf að leggja vír í garðinn. Þeir tengjast rafmagni með venjulegri innstungu og nota lítið rafmagn.
Hvað gerist ef eitthvað kemur upp á?
Róbotinn sendir okkur sjálfkrafa tilkynningu í símann ef eitthvað er athugavert, og við mætum eins fljótt og hægt er. Ef upp kemur alvarlegt tilvik er róbotinn tryggður, og á meðan hann er í viðgerð sláum við garðinn þinn á sama verði eða ódýrara.
Hvað kostar að leigja slátturóbot?
Verð fer eftir stærð og lögun garðsins. Sendu okkur fyrirspurn og þú færð tilboð sem hentar þínum garði.
Tilbúin/n að sleppa við sláttinn?
Sendu okkur fyrirspurn og við finnum réttu lausnina fyrir þinn garð, hvort sem það er slátturóbot á leigu eða grassláttur.
